Leit

Auglýsing

Erfinginn er fćddur

21. nóvember 2006 klukkan 02:26
Þetta litla kríli fæddist 18.11.2006 kl. 1:56. Hann vóg 3,3 kg og var 49 cm Hlæjandi


Meira krúttið

á leiðinni til læknis
Einar Örn Ólafsson

Hemmi Gunn

29. september 2006 klukkan 19:22

Fyrsti þátturinn af ,,Í sjöunda himni'' fram sýndur beint frá Nasa í gær og er það ekki frásögu færandi nema að ég var fenginn til að syngja í honum ásamt félögum mínum í KF Nörd. Vorum við anskotanum falskari og kunnum ekki textann. Bo sagði samt að þetta hefði verið flott hjá okkur en grunar mig að hann hafi bara verið að smjaðra fyrir miðum á völlinn.
Magni var þarna og hún klikkaða Dialana. Hún er nú reyndar ósköp rólegt grey og laus við alla stjörnustæla. Leyfði okkur meiraðsegja knúsa sig og fengum við mynd af okkur með henni. Hún og Magni tóku Roxanne og rosalega er þessi dvergur með ,,stóra'' rödd...ég segi bara: Margur er knár þótt hann sé smár.
Housebandið hans Hemmar er líka þrusugott og var mest áberandi að Biggi Nielsen fótboltahetja var eins og Kermitt í prúðuleikunum á trommunum. Ég gaf honum tvo miða á völlinn fyrir frábæra framistöðu innan hans sem utan.

Leikurinn á móti FH er á miðvikudaginn 4. október kl: 19:30. Kostar 500 kr. inn en ég get reddað miðum fyrir þá sem biðja fallega.

Einar Örn Ólafsson

Já, rétt hjá ykkur...Eiđur fór til Barcelona

21. ágúst 2006 klukkan 20:33

Hvar spilar Eiður Smári á næstu leiktíð?

24. maí 2006
Hann verður áfram hjá Chelsea ( 0% / 0 atkvæði ) Hann verður keyptur til Newcastle ( 0% / 0 atkvæði ) Manchester United kaupir Eið Smára ( 28% / 5 atkvæði ) Hann fer pottþétt til Barcelona ( 67% / 12 atkvæði ) Hann fer eitthvað annað ( 6% / 1 atkvæði )
Einar Örn Ólafsson

Ellismellir

21. ágúst 2006 klukkan 15:02
Langt síðan maður hefur komið hingað...ég ætlaði ekki að muna notendanafnið og lykilorðið þegar ég var að skrá mig inn Skömmustulegur reddaðist þar sem ég nota alltaf það sama nánast allstaðar

Ég var að spjalla við félaga minn um daginn og við fórum allt í einu að tala um gamalt fólk. Við vorum sammála um það að gamal fólk er óþolandi frekt. Það reynir alltaf að troða sér framfyrir í röðum þegar það getur og ef maður fer að rífa kjaft á það ekki orð yfir dónaskapinum í þessu unga fólki. Hissa Ég er ekki alveg að skilja þetta, samt reyndar er gamalt fólk jú gamalt og á ekkert rosalega mikið eftir ólifað þannig að það nennir ekkert að vera sóa tímanum með því að bíða í biðröð. Þá er reyndar annað...afhverju í fjandanum keyrir þá gamalt fólk svona HÆGT!!! Ég myndi nú reyna að gefa anneins í ef ég væri orðinn 80 ára gamall. Meina það er ekki eins og að maður verði eitthvað yngri úr þessu.
Ég og vinur minn komust að þeirri niðurstöðu að við botnum ekkert í gömlu fólki. Við skiljum þetta kannski eftir 50 ár Ullandi 
Amma mín er reyndar gömul en hún er mjög sniðug. Hún keyrir ekki sjálf heldur er hún með einkabílstjóra og hann fer víst líka út í búð fyrir hana. Lúxus.is

Eitt sem mig langar að benda gömlu fólki á sem keyrir hægt...KEYRIÐI Á FOKKING HÆGRI AKREIN!!!! ég verð bara pirraður þegar að fólk keyrir hægt á vinstri akrein sem er jú ætluð sem hraðari akreinin.

Annars er ég búinn að vera upptekinn í því að leika í sjónvarpsþætti en meira um það síðar Glottandi
Einar Örn Ólafsson

HM búiđ!

10. júlí 2006 klukkan 14:42

Þá HM í knattspyrnu búið og mér tókst að standa upp úr sófanum og skríða að tölvunni. Það er ekkert grín að horfa á alla þessa leiki. Ég hef ekki getað hreyft mig úr sófanum í þenna mánuð sem HM var, svaf og borðaði fyrir framan sjónvarpið. Fékk frí í vinnuni í mánuð til að ég myndi örugglega ekki missa af einum einasta leik. Þetta var líka þvílík veisla og þótt að vinnutapið kostaði mig 3 milljónir og ég skipti á bílnum mínum og 54" LCD sjónvarpið. Ég þyndist líka um 30 kg og er 120 kg núna...en þetta var allt þess virði. Hlæjandi Viva la fússball!

Núna er svo planið að fara í stífa líkamsrækt og ná af sér bjórspikinu. Líka alveg spurning hvort ég kaupi mér rakvél og raki mig Ullandi

Einar Örn Ólafsson

HM 2006

24. maí 2006 klukkan 15:00

HM 2006 byrjar eftir 16 daga þegar að Þjóðverjar taka á móti Costa Rica í opnunarleiknum í Munich. Það er nú líklegt að Þjóðverjarnir taki þann leik auðveldlega.
Ég held að Brasilía vinni þetta mót en Englendingar eru einnig líklegir til að ná langt. Fleiri góð lið eins og Spánn, Argentína, Ítalía og janfvel Frakkar eiga líka einhverja möguleika og ekki má gleyma Hollendingunum.

Nokkur lið þarna eru vel undir getu til að spila á svona móti. Íran, Angola og Togo eru lið sem ættu alls ekki að vera þarna ásamt fleirum. Ég býst ekki við því að þessi lið nái að vinna einn einasta leik en maður veit reyndar aldrei...það er allt hægt í fótbolta. Það eru lið í Evrópu og Suður-Ameríku sem væri eflaust skemmtilegra að hafa með í keppninni en þetta er víst heimsmeistarakeppnin og það verður því að leyfa þessum apaköttum að vera með.

Ein spurning...hvar ætlu Grikkirnir séu? Þeir unnu nú EM 2004 og eru ekki einusinni með á HM Hissa það er algjör skandall. Þeir eru sennilega ennþá að hneykslast á Sylvíu Nótt og löngu búnir að gleyma HM Ullandi

Einar Örn Ólafsson

Til hamingju Ísland!

19. maí 2006 klukkan 19:42
Jámm...einmitt Þögull sem gröfin
Einar Örn Ólafsson

Sól og sumar

12. maí 2006 klukkan 20:42
Djöfull held ég að veðrið í sumar verði gott Svalur allavegana byrjar sumarið vel. Ég kíkti út í Nauthólsvík á sunnudaginn og það var troðið að fólki þar. Stelpur sem voru berar að ofan og í sleik við hvor aðra, ég hélt mig væri að dreyma og varð að klípa í sjálfan mig.
Eitt er á hreinu og það er að mig er farið að hlakka til sumarsins Hlæjandi


Einar Örn Ólafsson

Löng helgi

03. maí 2006 klukkan 18:30
Þetta var helvíti fín helgi...ég skellti mér til Íraks með Norrænu, tók bílinn með. Fyllti hann af bensíni í Írak og var með 40 l. brúsa í skottinu sem ég tók með og fyllti á hann líka. Þetta kostaði samtals 2300 kr. og er ég þá búinn að borga upp ferðina miðað við ef ég hefði keypt sama magn af bensíni hérna á Íslandi. Hissa
Ég verð að gera þetta oftar...líka alltaf gaman að koma til útlanda og fá smá brúnku.
Fór í fótbolta í gær við Austurbæjarskóla og var að spila til eitt í nótt...fór svo í heitt bað og svona næs. Ég held að ég hafi sofnað rúmlega 2...kannski hálf 3. Ég vaknaði allavegana með hausverk í morgun og hann er ekkert á leiðinni að fara.
Vitið þið um eitthvað sem læknar hausverk? Og ekki segja verkjalyf því ég tek ekki svoleiðis drasl Hlæjandi

Einar Örn Ólafsson

Ţađ er gott ađ eiga góđa vini :)

28. apríl 2006 klukkan 19:13
Einar Örn Ólafsson

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Er litli prinsinn ekki sćtur?

Leikur dagsins